Fara yfir á efnisvæði

Sölubann á óöruggt leikfang

30.12.2013

Neytendastofa hefur lagt sölubann á leikfang á vagn frá Made by Grandma í kjölfar tímabundins sölubanns sem lagt var á vöruna á grundvelli ábendingar sem stofnuninni barst. Eftir að Neytendastofa lagði tímabundið sölubann á vöruna bárust stofnuninni engin gögn sem sýndu fram á öryggi vörunnar. Á leikfangið vantaði CE merkingu. Það bendir til þess að varan sé ekki öruggt leikfang fyrir barn en CE merkt vara þýðir að hún uppfylli allar þær kröfur sem gerðar eru til hennar í lögum, reglugerðum settum samkvæmt þeim og stöðlum. Rétt er að vekja athygli á því að öll sala viðkomandi leikfangs er bönnuð.

Athygli skal þó vakin á því að engar tilkynningar hafa borist Neytendastofu um slys af völdum ofangreinds leikfangs

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA