Fara yfir á efnisvæði

Hugsanleg eldhætta í Bosch, Siemens uppþvottavélum.

08.01.2014

Neytendastofa vill vekja athygli á tilkynningu um hugsanlega eldhættu í Bosch, Siemens uppþvottavélum. Fram kemur að í örfáum uppþvottavélum getur rafmagnsíhlutur ofhitnað og valdið hugsanlegri eldhættu. Um er að ræða uppþvottavélar sem framleiddar voru á árunum 1999 til 2005.

Til þess að athuga hvort að þetta á við um þína uppþvottavél getur þú farið á meðfylgjandi vefslóð þar sem þú slærð inn tegundarnúmer, lotunúmer og raðnúmer uppþvottavélarinnar. Á meðfylgjandi slóð er einnig að finna nánari upplýsingar um hvar þú finnur umrædd númer á þinni vél. Þá er einnig gefið upp þjónustunúmer. Vakin er sérstök athygli á því að þetta gildir aðeins um takmarkaðan fjölda uppþvottavéla en ekki um aðrar Bosch, Siemens uppþvottavélar en þær sem hér um ræðir.

Ofangreinda vefslóð má nálgast hér: https://dishcareaction.com/is-is.

TIL BAKA