Fara yfir á efnisvæði

Neytendastofa sektar bakarí og fiskbúðir fyrir ófullnægjandi verðmerkingar

07.02.2014

Neytendastofa hefur sektað þrjú bakarí og tvær fiskbúðir  í kjölfar könnunar stofnunarinnar á ástandi verðmerkinga. Stofnunin fór í heimsóknir í bakarí og fiskbúðir á höfuðborgarsvæði í þeim tilgangi að skoða verðmerkingar og fengu þau fyrirtæki sem stofnunin gerði athugasemdir við fyrirmæli að lagfæra verðmerkingar sínar svo ekki þyrfti að koma til frekari aðgerða af hálfu stofnunarinnar. 
Þegar skoðununum var fylgt eftir kom í ljós að þrjú bakarí og tvær fiskbúðir höfðu ekki gert fullnægjandi lagfæringar á verðmerkingum sínum. Því hefur Neytendastofa nú lagt 50.000 kr. stjórnvaldssekt á bakaríin Björnsbakarí Austurströnd, Bæjarbakarí og Okkar bakarí og á fiskbúðirnar Gallerý fisk og Fiskbúðina Höfðabakka. 

Ákvarðanirnar eru nr. 1/2014, 2/2014, 3/2014, 4/2014 og 5/2014

TIL BAKA