Fara yfir á efnisvæði

Seinni heimsókn í ísbúðir og pósthús

24.06.2014

Neytendastofa fór í ísbúðir og pósthús á höfuðborgarsvæðinu í maí sl. til að kanna hvort verðmerkingar væru í samræmi við lög og reglur. Könnuninni var svo fylgt eftir núna í júní með seinni heimsókn. Farið var í fjórar ísbúðir og tvö pósthús sem stofnunin hafði gert athugasemdir við í fyrri ferð. Skoðað var hvort verðskrá væri sýnileg á pósthúsunum og söluvörur verðmerktar. Hjá ísbúðunum var kannað hvort vörur í borði og kæli væru verðmerktar.

Öll fyrirtækin höfðu haft fyrirmæli Neytendastofu að leiðarljósi og bætt verðmerkingar sínar. 
Við hvetjum neytendur til að vera ávallt vel á verði og koma ábendingum til stofnunarinnar með rafrænum hætti í gegnum rafræna Neytendastofu á slóðinni  http://www.neytendastofa.is/

TIL BAKA