Fara yfir á efnisvæði

Hekla hf. innkallar Mitsubishi bifreiðar

06.07.2014

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf um innköllun á Outlander II, Outlander III og ASX með samsetninguna 2,2 L DID vél og 6 þrepa sjálfskipting. Á Íslandi eru 15 bílar, af gerðinni Outlander III, sem falla undir þessa innköllun. Ástæða innköllunar er, að vegna ófullkominnar framleiðslu hjá öðrum af tveimur framleiðendum millikassana, getur pakkdós í millikassa losnað úr sæti og sjálfskiptivökvi lekið inn í millikassann. Ef það gerist fellur þrýstingur á sjálfskiptivökva og bifreiðin verður óökufær. Viðgerð felst í að framleiðslunúmer á millikassa verður skoðað og skipt um millikassa ef þarf.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður sent bréf vegna innköllunarinnar.

TIL BAKA