Fara yfir á efnisvæði

Verðskrá á dekkjaverkstæðum

16.10.2014

Neytendastofa kannaði á dögunum verðmerkingar á dekkjaverkstæðum höfuðborgarsvæðisins. Nú fer að koma að því að landsmenn þurfi að skipta yfir á vetrardekkin og eiga neytendur rétt á því að geta gert verðsamanburð á milli verkstæða og leitað eftir bestu tilboðunum.
Farið var á 35 dekkjaverkstæði og athugað hvort verðskrá yfir alla framboðna þjónustu væri sýnileg. Könnunin leiddi í ljós að af þessum 35 dekkjaverkstæðum voru 12 þeirra ekki með verðskrá til staðar en það var hjá Barðanum Skútuvogi, Vöku Skútuvogi, Max 1 Bíldshöfða, Kvikkfix Hvaleyrarbraut, Dekkjahúsinu Auðbrekku, Bílkó Smiðjuvegi, Bíla áttunni Smiðjuvegi, Sólningu Smiðjuvegi, Hjólbarðaverkstæði Bílabúðar Benna Vagnhöfða, Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs Gylfaflöt, Klett Suðurhrauni og Sólningu Hjallahrauni. Á tveim verkstæðum var verðskrá til staðar en ekki sýnileg en það var hjá Gúmmívinnustofunni Skipholti og Nýbarða Lyngási.
Könn¬un¬inni verður fylgt eft¬ir með ann¬arri heim¬sókn á næstu vik¬um og mun þá koma í ljós hvort rekstraaðilar dekkjaverkstæðanna hafi farið eft¬ir fyr¬ir¬mæl¬um stofn¬un¬ar¬inn¬ar og bætt verðmerk¬ing¬ar sín¬ar. Hafi það ekki verið gert geta verkstæðin átt von á sekt¬um.
Neytendastofa mun halda áfram að fylgja eftir sjálfsögðum rétti landsmanna og veita fyrirtækjum landsins nauðsynlegu aðhaldi sem skilar sér í formi góðrar og réttrar verðmerkingu vara.
Stofnunin hvetur neytendur til að vera á verði og koma ábendingum til skila í gegnum rafræna neytendastofu á vefslóðinni www.neytendastofa.is.

TIL BAKA