Fara yfir á efnisvæði

Veitingastaðnum Loftið bannað að nota heitið Loftið.

29.12.2014

Neytendastofa hefur bannað veitingastaðnum Loftið sem rekinn er af Boltabarnum ehf. að nota heitið Loftið. Stofnuninni barst kvörtun frá keppinautnum Farfuglar ses sem rekur m.a. Loft Bar, þar sem fyrirtækið taldi að brotið væri gegn rétti sínum með notkun heitisins.

Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að notkun Boltabarsins á heitinu væri til þess fallin að valda ruglingshættu. Taldi Neytendastofa að líta yrði til þeirrar ríku vörumerkjaverndarsem orðmerkið veitir Farfuglum, hinnar sérstæðu notkunar merkisins, stöðu viðkomandi fyrirtækja á markaðnum og samkeppnisstöðu þeirra.

Var Loftinu því bönnuð notkun auðkennanna Loft, Loftið, Loftbarinn og lénsins loftidbar.is til auðkenningar á starfsemi sinni.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.


TIL BAKA