Fara yfir á efnisvæði

Bílabúð Benna innkallar 20 Chevrolet Malibu

08.04.2015

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílabúð Benna varðandi innkallanir á 20 Chevrolet Malibu bifreiðum af árgerð 2012-2015. Í tilkynningunni kemur fram að ástæða innköllunar er að Chevrolet hefur uppgötvað að í sumum bílum framleiddum á þessu tímabili sé möguleiki á að pinni sem heldur öryggisbeltafestingu saman, hafi ekki verið rétt festur og geti því færst úr stað. Innköllunin verður framkvæmd eiganda að kostnaðarlausu .

Bílabúð Benna ehf. hefur þegar sent viðkomandi bifreiðareigendum bréf vegna þessarar innköllunar.

Nánari upplýsingar um innköllunina er hægt að nálgast hjá þjónustufulltrúum í verkstæðismóttöku Bílabúðar Benna ehf.

TIL BAKA