Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun Neytendastofu staðfest

20.08.2015

Neytendastofa bannaði bakaríinu Reynir bakari að notast við orðið konditori í vörumerki og auglýsingum með ákvörðun 6/2015. Stofnuninni hafði borist kvörtun frá Konditorsambandi Íslands þar sem fram kom að ábyrgðaraðili bakarísins hafi ekki réttindi til að nota þetta lögverndaða starfsheiti. Neytendastofa taldi að notkun á heitinu „konditori“ í markaðssetningu gæfi með augljósum hætti til kynna að sá sem einkenni sig með heitinu hafi tilskilin réttindi til að nota heitið. Neytendastofa tók því ákvörðun um að með notkun Reynis bakara á orðinu konditori væri villandi gangvart neytendum. Áfrýjunarnefnd Neytendamála hefur nú staðfest þá ákvörðun.

Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA