Fara yfir á efnisvæði

Tilkynning um slysahættu vegna Neyðarkalls

07.01.2016

FréttamyndNeytendastofa vekur athygli á tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg vegna lyklakippu, Neyðarkall björgunarsveitanna, sem seld var í nóvember 2015. Í tilkynningunni kemur fram að dagana 5. – 7. nóvember sl. hafi farið fram árleg fjáröflun Slysavarnarfélagsins Landsbjargar (SL) með sölu á Neyðarkallinum. Neyðarkallinn var sem fyrr lyklakippa með eftirlíkingu af björgunarsveitarmanni, nú með björgunarsveitarmanni með dekk og drifskaft í höndum.

Eftir að átakinu lauk kom í ljós að hætta væri á að drifskaftið geti losnað af kallinum og ákvað því SL að eigin frumkvæði að senda út tilkynningu til fjölmiðla þar sem varað var við þessu. Skoðun Neytendastofu leiddi einnig í ljós að kallinn og drifskaftið komast fyrir í þar til gerðum kokhólk og getur því skapað slysahættu fyrir börn á aldrinum 0-3 ára.

Í tilkynningu SL kemur fram að engar tilkynningar eða kvartanir hafi borist félaginu vegna þessa, né að tilkynnt hafi verið um slys af þessum völdum.

SL hefur af þessu tilefni verið í nánu sambandi við Neytendastofu. Hefur sú ákvörðun verið tekin í samráði við Neytendastofu að við framleiðslu á næsta Neyðarkalli verði hluturinn skilgreindur sem leikfang og fái sem slíkur viðeigandi framleiðsluferli og uppfylli allar kröfur um merkingar og vottun. Er þetta gert til að tryggja með þeim hætti sem bestur er öryggi barna.

TIL BAKA