Fara yfir á efnisvæði

IKEA innkallar trommukjuða og tungutrommu

16.01.2016

FréttamyndNeytendastofa vekur athygli á innköllun IKEA á LATTJO trommukjuðum eða LATTJO tungutrommu vegna slysahættu. Leikföngin hafa verið í sölu hjá IKEA um allan heim síðan í nóvember 2015.

Í tilkynningunni kemur fram að Innköllunin er fyrirbyggjandi aðgerð vegna tilkynninga frá starfsmönnum IKEA um að gúmmíkúlan framan á kjuðunum geti mögulega losnað eða verið skrúfuð af. Laus gúmmíkúla gæti vakið áhuga ungra barna og í versta falli valdið köfnun. Engin tilkynning um slys hefur borist.

Vörurnar eru prófaðar og vottaðar, og standast allar almennar öryggiskröfur fyrir leikföng. Við athugun okkar kom þó í ljós möguleg hætta sem ekki er tekið á við prófanir.

„Við hönnum vörur sem ætlað er að örva sköpunargáfu barna og náttúrulega þörf fyrir leik. Börn hugsa ekki um öryggi þegar þau leika sér og þess vegna þurfum við að gera það þegar við hönnum vörurnar. Hugsunin hjá okkur er að selja aðeins vörur sem við myndum gefa okkar eigin börnum. Þess vegna, þrátt fyrir að hafa staðist öll viðeigandi öryggispróf, innköllum við þessar vörur til að koma í veg fyrir möguleg slys á börnum,“ segir Cindy Andersen, viðskiptastjóri barnavara hjá IKEA.

IKEA hvetur viðskiptavini sem eiga LATTJO trommukjuða eða LATTJO tungutrommu til að taka leikföngin tafarlaust úr notkun barna og skila þeim í IKEA. Þau verða endurgreidd að fullu. Nánari upplýsingar má fá á www.IKEA.is eða í þjónustuveri í síma 520 2500.

TIL BAKA