Fara yfir á efnisvæði

Brimborg ehf innkallar Volvo

09.03.2016

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf um innköllun á 90 Volvo XC60, V60, V60cc, S60, XC70, V70, S60cc bifreiðum af árgerðinni 2016. Ástæða innköllunarinnar er að meðan á akstri stendur getur vélartölva bílsins endurræst sig sem veldur truflun á rafkerfi bílsins.
Viðkomandi bifreiðareigendur munu fá sent bréf frá Brimborg vegna þessarar innköllunar.

TIL BAKA