Fara yfir á efnisvæði

Ein af 109 fasteignasölum í lagi

29.03.2016

Neytendastofa kannaði í byrjun árs vefsíður 109 fasteignasala á landinu ásamt því að kanna sölustaði þeirra sem staðsettar eru á Höfuðborgarsvæðinu. Athugað var hvort verð á öllum þjónustuþáttum væri sýnilegt á staðnum og á vefsíðum fyrirtækjanna þar sem skylt er að gefa upp verð bæði þar sem þjónusta er kynnt og seld auk þess sem sérstaklega þarf að taka fram ef annar kostnaður bætist við verðið. Einnig var kannað hvort allar upplýsingar um fasteignasölurnar, svo sem heimilisfang, kennitala, netfang, vsk.númer, hlutafélagaskrá og starfsleyfi kæmu fram á vefsíðu. Fasteignasölum ber skylda að vera með lögbundið starfsleyfi frá Innanríkisráðuneytinu.

Könnun Neytendastofu leiddi í ljós að einungis fasteignasalan Nýtt Heimili uppfyllti öll þau skilyrði sem gerð eru til upplýsinga um þjónustuna. Flestar athugasemdir sem komu fram voru vegna skorts á upplýsingum um söluaðilann og vantaði einnig sýnilega söluþóknun á flestar vefsíður. Af þeim 109 vefsíðum sem skoðaðar voru var verð á öllum þjónustuþáttum einungis tilgreint á fjórum síðum en fimm til viðbótar höfðu einhverjar upplýsingar um verð. Þá voru einungis þrjár fasteignasölurnar með gjaldskrá sýnilega fyrir alla þjónustuþætti á sölustað og þrjár til viðbótar höfðu hluta af upplýsingunum sýnilegar.

Neytendastofa hvetur neytendur til að vera á verði og koma ábendingum um verðmerkingar til skila í gegnum Mínar síður sem finna má á vefslóðinni www.neytendastofa.is

TIL BAKA