Fara yfir á efnisvæði

BL ehf. innkallar 124 Subaru bifreiðar

01.04.2016

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. um innköllun á 124 Subaru bifreiðum árgerð 2015, af tegundinni Legacy / Outback. Ástæða innköllunarinnar er að möguleg bilun er í rafmagnshandbremsu, möguleiki að handbremsa festist.
Nánari upplýsingar um innköllunina er hægt að nálgast hjá þjónustufulltrúum í þjónustuveri BL ehf.

TIL BAKA