Fara yfir á efnisvæði

Fast ráðningum bönnuð notkun auðkennisins TALENT

21.04.2017

Talent ráðningar og ráðgjöf ehf. kvartaði yfir notkun Fast ráðninga á léninu talent.is og fór fram á að félaginu yrði bönnuð öll notkun auðkennisins TALENT. Bæði fyrirtækin starfa við starfsmannaráðningar og ráðgjöf til fyrirtækja því tengdu og eru því keppinautar á markaði.

Lénið talent.is var áður í notkun fyrirtækisins Talent ráðningar og ráðgjöf en þegar skráður rétthafi lénsins lét af störfum hjá fyrirtækinu hófu Fast ráðningar notkun lénsins. Fast ráðningar notuðust við lénið talent.is með þeim hætti að notandi sem sló vefslóðina inn í vafra var sjálfkrafa fluttur á vefslóðina fastradningar.is. Við meðferð málsins hjá Neytendastofu var annarri notkun auðkennisins hætt af hálfu Fast ráðninga.

Niðurstaða Neytendastofu var sú að Talent ráðningar og ráðgjöf nytu einkaréttar á auðkenninu TALENT og þar sem hætt væri á ruglingi milli fyrirtækjanna vegna notkunar Fast ráðninga á léninu talent.is var því félagi bönnuð notkun auðkennisins.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér

TIL BAKA