Fara yfir á efnisvæði

BL ehf. Innkallar BMW bifreiðar

03.05.2017

Lógó BLNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. varðandi innköllun á tveim bifreiðum af gerðinni BMW Alpina F10, framleiðsluár frá 2010-2011. Ástæða innköllunar er vegna samtengingar fyrir drifskaft sem getur verið gallað og endist ekki líftíma bílsins, þarf því að skoða hann og sömuleiðis framleiðslunúmerið á honum og skipta um ef þarf. Ekki þarf að skipta um hann ef búið er að gera beitningar á viðkomandi hlut.

Eigendum viðkomandi bifreiða verður sent innköllunarbréf.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við BL ehf. ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA