Fara yfir á efnisvæði

BL ehf. Innkallar Land Rover bifreiðar

18.05.2017

Lógó BLNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. varðandi innköllun á 39 bifreiðum af gerðinni Range Rover, Range Rover Evoque, Discovery Sport, framleiðsluár 2016. Ástæða innköllunar er að „Service Required“ þjónustuáminning í mælaborði kemur ekki upp þegar komið er að þjónustu á bílnum og bílnum startað. Þjónustuáminningin kemur upp þegar svissað er á bílinn.

Eigendum viðkomandi bifreiða verður sent innköllunarbréf.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við BL ehf. ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA