Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið Askja innkallar Mercedes-Benz

21.05.2018

lógó bílaumboðið AskjaNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju hf. að innkalla þurfi 27 Mercedes-Benz GLC allir skráðir 2018. Ástæða innköllunar er að þegar ytri belti fyrir aftursætin eru losuð er möguleiki fyrir því að þau festist. Losa þarf beltin sérstaklega svo þau dragist aftur inn. Viðgerð tekur um klukkustund og felst í lagfæringu á C-póst.

Bílaumboðið Askja mun senda eigendum viðkomandi bifreiða bréf um innköllunina.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA