Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið Askja innkallar Mercedes-Benz

10.07.2018

lógó bílaumboðið AskjaNeytendastofu hefur borist tilkynning frá bílaumboðinu Öskju hf. um innköllun á 2 Mercedes-Benz bifreiðum af gerðunum C-class og E-class. Innköllunin er vegna þess að Möguleiki er fyrir því að stýristúpa sé ekki nógu jarðtengd.
Samhliða bilun í rafkerfi gæti það gerst að öryggispúði í stýri virkist. Viðgerð felst í því að jarðtenging á stýristúpu er athuguð og lagfæring er framkvæmd ef þess þarf.. Skoðun tekur klukkustund.
Haft verður samband við eigendur umræddra bíla bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við Bílaumboðið Öskju ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA