Fara yfir á efnisvæði

Upplýsingar á vefsíðum fjarskiptafyrirtækja ekki í lagi

18.09.2018

Neytendastofa tók þátt í samræmdri skoðun Evrópusambandsins (s.k. sweep) á vefsíðum fjarskiptafyrirtækja. Könnunin snéri m.a. að því hvort fram kæmu með nægilega skýrum hætti upplýsingar um þjónustuveitanda, vörur og þjónustu, verð og samningsskilmála á vefsíðunum.

Neytendastofa skoðaði vefsíður hjá Vodafone, Símanum, Hringdu, Hringiðunni og Nova.og gerði athugasemdir við allar vefsíðurnar. Athugasemdirnar snéru m.a. að því að skýrari upplýsingar vantaði fyrir neytendur um eiginleika þjónustunnar eða vörunnar. Einnig vantaði í sumum tilfellum upplýsingar um þjónustuveitanda, heildarverð, gildistíma samningsins. lágmarkstímabil samnings eða skilyrði fyrir uppsögn. Þá vantaði í öllum tilvikum upplýsingar um framkvæmd og meðferð kvartana og lögbundin úrræði neytenda vegna galla á þjónustu. Þrátt fyrir að fyrirtækin hafi gert breytingar á upplýsingum sínum í kjölfar athugasemda Neytendastofu taldi stofnunin þau ekki hafa gert fullnægjandi lagfæringar og því hefur hún tekið ákvarðanir um þau atriði sem þurfti að gera nánari grein fyrir.

Ákvarðanirnar má nálgast hér.

TIL BAKA