Fara yfir á efnisvæði

Duldar auglýsingar bannaðar

02.10.2018

Neytendastofa hefur bannað fyrirtækjunum Origo hf., Sahara Media ehf. og tveimur bloggurum á trendnet.is að nota duldar auglýsingar.
Neytendastofu bárust ábendingar vegna bloggfærslna á vefsíðunni Trendnet þar sem fjallað var um vöru Origo hf. Ábendingarnar lutu að því að hugsanlega væri um markaðssetningu að ræða en slíkt væri hins vegar ekki tekið fram.
Neytendastofa krafði fyrirtækin og bloggarana um upplýsingar um hvort endurgjald hefði komið fyrir umfjöllunina, aðkomu fyrirtækjanna að undirbúningi umfjöllunarinnar og hvort þriðji aðili hefði annast milligöngu. Við meðferð málsins kom fram að einstaklingarnir höfðu þegið vöru að gjöf frá fyrirtækinu sem telst vera endurgjald. Neytendastofa taldi að um væri að ræða markaðssetningu og að ekki hefði komið fram með nægilega skýrum hætti að umfjöllunin hefði verið auglýsing eða að hún væri gerð í viðskiptalegum tilgangi, en slíkt verður að koma skýrt fram.
Neytendastofa taldi að um væri að ræða duldar auglýsingar og að fyrirtækin og bloggararnir hefðu brotið lög með framangreindum hætti.

Ákvarðanirnar má nálgast hér

Leiðbeiningar Neytendastofu um auðþekkjanlegar auglýsingar fyrir áhrifavalda og fyrirtæki sem má nálgast hér.

TIL BAKA