Fara yfir á efnisvæði

Innköllun á Honda bifreiðum

07.02.2019

Vörumerki Honda

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bernhard ehf um að innkalla þurfi Honda bifreiðar af árgerðunum 2010 til 2015.  Um er að ræða 576 bifreiðar af gerðunum Accord, Jazz og CR-V.k. Ástæða innköllunarinnar er sú að loftpúðar bifreiðanna gætu verið gallaðir. Um er að ræða hluta af alþjóðlegri innköllun sem rekja má til loftpúðaframleiðandans Takata. 

Við innköllun er skipt um loftpúða farþegamegin. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa. 

TIL BAKA