Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið Askja innkallar Mercedes-Benz Actros

04.03.2019

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi Mercedes-Benz Actros vörubifreiðar af gerðunum 963 og 964. Um er að ræða 13 vörubifreiðar.
Ástæða innköllunarinnar er möguleiki er að vindhlif framan á bifreiðinni losni af. Við innköllun eru skipt um vindhlífar. Haft verður samband við eigendur símleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa. 

TIL BAKA