Fara yfir á efnisvæði

BL ehf. innkallar 587 Subaru Forrestar

18.11.2019

Subaru vörumerkiNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 587 Subaru Forrester bifreiðar af árgerð 2015 til 2018 Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að skynjarn í farþegasæti virki ekki sem skyldi. Ef slík er raunin þá er möguleiki á að loftpúðakerfi virki ekki sem skyldi. Viðgerð felst í því að skipt verður um skynjara í farþegasæti.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA