Fara yfir á efnisvæði

Askja innkallar vegna vindskeiða

05.12.2019

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 17 Mercedes-Benz bifreiðar af undirgerðinni E-class, sem framleiddar voru milli 29. september 2016 og 23. maí 2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að vindskeð á afturhlera gæti losnað sökum þess að rær séu ekki nægilega fastar.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA