Fara yfir á efnisvæði

BL innkallar 16 BMW X6 bifreiðar

06.02.2020

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 16 BMW X6 bifreiðar af árgerð 2014-2016. Ástæða innköllunarinnar er að ISOFIX festingar fyrir barnasæti eru ekki nógu sterkar og það þarf að styrkja þær.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA