Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið Askja innkallar 8 Mercedes-Benz Citan

07.02.2020

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 8 Mercedes-Benz Citan bifreiðar af árgerð 2019 Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er fyrir því að ekki nægileg hersla sé á hjólnöfum og bremsukjömmum að aftan. Í versta falli gæti afturdekk losnað af.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA