Fara yfir á efnisvæði

Áfyllingar fyrir rafrettur bannaðar vegna of mikils nikótínmagns

13.02.2020

Neytendastofa fór í eftirlit hjá Dzien Dobry, Hólagarði, sem selur rafrettur og áfyllingar í þær. Lagt var sölubann á 14 tegundir af áfyllingum fyrir rafrettur.

Sjö tegundir áfyllinga fyrir rafrettur innihéldu nikótínvökva umfram leyfilegan hámarksstyrkleika. Á umbúðum þriggja áfyllinga voru tveir límmiðar. Á ytri límmiða, sem sneri að viðskiptavinum, stóð að áfyllingin innihéldi 20 mg/ml. Við nánari skoðun kom í ljós að límmiðinn hafði verið límdur yfir annan límmiða þar sem sagði að áfyllingin innhéldi 50 mg/ml. Við prófanir reyndust áfyllingarnar innihalda rúmlega 50 mg/ml af nikótíni, sem er langt umfram leyfilegan hámarksstyrkleika. Því var lagt bann við sölu og afhendingu við þeim.

Aðrar sjö tegundir voru bannaðar þar sem búið var að rjúfa innsigli þeirra og bæta við nikótíni, auk þess sem tvær þeirra voru taldar höfða til barna. Neytendastofa taldi áfyllingarnar ekki öruggar, þar sem ekkert var vitað um innihald áfyllinganna og bannaði því sölu á þeim.

Hægt er að lesa ákvörðun Neytendastofu hér.


TIL BAKA