Fara yfir á efnisvæði

Askja innkallar Díselbíla.

02.03.2020

Vörumerki HondaNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 427 Honda Civic, 5D, Civic Tourer, CR-V Diesel, CR-V DTEC, HR-V bifreiðar af árgerð 2015 - 2016 - 2017 - 2018. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að uppsöfnun brennisteins í hvarfakút getur valdið því að ökutækið uppfyllir ekki útblástursviðmið. Um er að ræða bifreiðar með díselvélar. Viðgerð tekur um það bil klukkustund og felst í uppfærslu á hugbúnaði.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA