Fara yfir á efnisvæði

Askja innkallar A-Class vegna Takta loftpúða.

27.04.2020

lógó bílaumboðið AskjaNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 93 Mercedes-Benz A-Class bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að við ákveðin loftslagsskilyrði gætu loftpúðar frá Takata ekki virkað sem skyldi.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA