Fara yfir á efnisvæði

Bönd í 17.júní blöðrum

16.06.2020

Blöðrur

Þjóðhátíðardagurinn 17.júní er framundan og hátíðarhöldin sem honum fylgja. Ýmis skemmtun er í boði fyrir börnin og er dagurinn þeim mikið tilhlökkunarefni. Til að tryggja að dagurinn verði sem ánægjulegastur er mikilvægt að tryggja öryggi barnanna.

Búast má við blöðrum út um land allt og eru álblöðrur þar áberandi. Á þær eru gjarnan sett bönd eða spottar sem eru mjög sterkir og erfitt er að slíta þá. Blöðrurnar eru síðan afhendar börnum og þær eru oft bundnar við vagna eða úlnliði barna. Þetta getur skapað hættu fyrir ung börn og er þess vegna mikilvægt að vera undir eftirliti fullorðinna.

Um leið má benda á að blöðrur, líkt og önnur leikföng, sem markaðssettar eru á Íslandi eiga að vera CE merktar og uppfylla ákvæði staðla og reglna sem um þær gilda.

Forráðamönnum er bent á að blöðrur ætti alls ekki að binda við vagna, rúm eða handleggi barna án stöðugs eftirlits.

Njótum þjóðhátíðardagsins og annarra hátíða prýddum blöðrum og pössum einnig upp á eftirlit með börnunum.

Gleðilega hátíð!

TIL BAKA