Fara yfir á efnisvæði

Heimild Icelandic Water Holdings hf til að e-merkja framleiðslu sína framlengd

17.07.2020

FréttamyndNeytendastofa framlengdi á dögunum eftir úttekt heimild fyrirtækisins Icelandic Water Holding hf til e-merkingar. Vottunin gildir fyrir framleiðslulínu fyrirtækisins á íslensktu vatni sem það selur víða um heim undir heitinu Ícelandic Glacial.
Merkið e á vöru staðfestir að kerfið sem notað er til pökkunar hennar er það nákvæmt að kaupandi vörunar geti treyst því að um rétt magn er að ræða. Staðsetning e-merkisins er við hliðina á þyngdar- eða rúmmálsmerkingu vörunar t.d. 0,5 kg e eða 500 ml e

Vaxandi fjöldi fyrirtækja í Evrópu setur e-merkingu sem skilyrði til að taka forpakkaðar vörur í sölu og hefur Neytendastofa á heimasíðu sinni leiðbeiningar fyrir þá aðila sem óska að fá vottað ferli til e-merkinga. Ekki er leyfilegt að nota e-merkið án vottunar.

TIL BAKA