Fara yfir á efnisvæði

Er endurskinsmerkið þitt í lagi?

30.08.2013

Neytendastofa vill koma því á framfæri að neytendur athugi vel hvort að allar upplýsingar og merkingar séu til staðar á endurskinsmerkjum áður en þau er notuð. Það hefur komið of oft fyrir að merki séu seld eða gefin sem endurskinsmerki en eru það í raun ekki. Það er oft ekki hægt að sjá mun á endurskinsmerki sem er í lagi og öðru merki sem lítur eins út, með sama lit, form og áferð.  En raunin er samt sú að annað merkjanna er með endurskini  og sést því vel í skammdeginu en hitt merkið gefur falska öryggiskennd og getur þar af leiðandi skapast  lífshætta þar sem einstaklingurinn telur sig vera með endurskinsmerki sem ökumenn ættu að sjá.

Ljóst er að ekki er hægt að meta hvort endurskinsmerki uppfylli öryggiskröfur með því einu að horfa á þau. Því hvetur Neytendastofa fólk að skoða vel upplýsingarnar sem gefnar eru á merkinu, umbúðum eða upplýsingablaði sem fylgir þeim.  Það er mjög áríðandi að allar tilskildar merkingar og leiðbeiningar um notkun komi greinilega fram.  Á merkingunum sést hvort að endurskinsmerkið hafi verið prófað og virki eins og það á að virka.

Endurskinsmerki sem standast kröfur verða að vera m.a. með CE-merki og merkt með númerinu EN 13356 eða ÍST EN 13356. Slík merking táknar að framleiðandinn hafi látið prófa vöruna og staðfest er að hún sé í lagi.

Ábendingum vegna endurskinsmerkja sem grunur er um að uppfylli ekki kröfur  má koma til Neytendastofu í gegnum rafræna Neytendastofu á  heimasíðunni Neytendastofa.is.

TIL BAKA