Fara yfir á efnisvæði

Lénið polsen.is

17.05.2021

Neytendastofu barst kvörtun frá Poulsen ehf. yfir skráningu og notkun Orku ehf. á léninu polsen.is. Taldi Poulsen að notkun á léninu skapaði hættu á ruglingi fyrir neytendur því sjón- og hljóðlíking væri alger enda sé það aðeins stafurinn „u“ sem skilji á milli lénanna.

Orka hafnaði því að hætta væri á ruglingi og benti á að þegar komið væri inn á vefsíðuna væri hún skilmerkilega merkt Orku og hvergi minnst á Poulsen. Félagið flytji inn og selja heyrnartól frá framleiðandanum Polsen og þannig sé lénið tilkomið.

Við ákvörðun í málinu leit Neytendastofa til þess að fyrirtækin eru keppinautar. Veruleg líkindi séu með lénunum auk þess sem þau eru borin fram sem sama hætti. Þá hafði áhrif að þegar neytendur slá inn vefslóðina polsen.is flytjast þeir beint inn á aðalsíðu Orku, bilrudur.is, og tengist lénið þar með markaðssetningu á Polsen heyrnartólum ekki með beinum hætti. Neytendastofa taldi hættu á ruglingi vegna líkinda lénanna og því væri Orku bönnuð notkun þess.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.


TIL BAKA