Sala í fjarsölu eða utan fastrar starfstöðvar
Lög nr. 16/2016 um neytendasamninga tryggja vernd neytenda við kaup á vörum og þjónustu utan fastrar starfsstöðvar seljanda, t.d. í gegnum síma, á Netinu og við húsgöngusölu. Neytendastofa hefur eftirlit með viðskiptaháttum samkvæmt lögunum. Lögin eru ófrávíkjanleg og því geta skilmálar seljanda ekki kveðið á um lakari rétt en lögin gera ráð fyrir.
Lög um neytendasamninga gera ríkar kröfur til upplýsingaskyldu seljenda. Upplýsingarnar sem fram eiga að koma þegar um sölu í fjarsölu eða utan fastrar staðstöðvar er að ræða eru taldar upp í stafliðum a. – s. í 5. gr. laganna. Meðal upplýsinga sem þeim ber að veita neytendum áður en samningur er gerður eru upplýsingar um:
• nafn sitt og heimilisfang
• helstu eiginleika vöru eða þjónustu
• verð vöru eða þjónustu, þar með talin öll opinber gjöld, sem og afhendingarkostnað, ef það á við
• fyrirkomulag á greiðslum, afhendingu og hvenær hún fer fram
• skilyrði, tímamörk og tilhögun réttar til að falla frá samningi ef hann er fyrir hendi, ásamt stöðluðu uppsagnareyðublaði,
• lögbundin úrræði neytenda vegna galla á söluhlut eða þjónustu
• gildistími samnings eða, ef ótímabundinn eða endurnýjar sjálfkrafa, skilyrði fyrir uppsögn
• hvort fyrir sé hendi kerfi fyrir kvartanir eða úrlaus deilumála utan dómstóla
Mjög mikilvægt er fyrir seljendur að uppfylla skilyrði laganna því vanræksla á því getur leitt til þess að neytandi sé ekki bundinn af samningi eða að tímafrestir falli úr gildi.
Hafi seljandi til dæmis ekki látið neytanda í té upplýsingar um rétt sinn til að falla frá samningi, eins og lögin gera kröfu um, þá hefur neytandi eitt ár til þess að falla frá samningi eftir að upphaflegi fresturinn rann út.
Þegar vara er seld í fjarsölu eða utan fastrar starfsstöðvar hefur neytandinn hvorki séð vöruna í reynd né heldur kynnst eiginleikum hennar áður en gengið er frá kaupum. Neytandinn hefur því rétt til að hætta við kaupin án nokkurra skýringa innan 14 daga frá því að hann fær vöru afhenta en innan 14 daga frá því að samningur var gerður ef um þjónustu er að ræða og fá endurgreiðslu. Neytandanum ber að sjálfsögðu að skila vörunni óskemmdri til seljandans. Ákvæðið um að falla frá samningi gildir ekki í tilvikum þar sem vara eða þjónusta hefur verið sérsniðin að kröfum neytandans eða innsigli hafa verið rofin. Ef neytandi nýtir þennan rétt sinn og fellur frá samningi þá er seljanda skylt að endurgreiða honum án nokkurs kostnaðar þær greiðslur sem hann hefur þegar innt af hendi. Slík endurgreiðsla skal fara fram eins fljótt og kostur er og aldrei síðar en eftir 14 daga.