Fara yfir á efnisvæði

BL ehf innkallar Hyundai

14.09.2016

Lógó BLNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. um innköllun á 165 Hyundai bifreiðum. Um er að ræða Tucson TLe bifreiðar framleiddar á árunum 2015 og 2016. Ástæða innköllunarinnar er sú að á sumum Tucson Tle er hætta á að húdd sé ekki nægilega fest við öryggisfestingu.
Viðkomandi bifreiðareigendur munu fá sent bréf vegna þessarar innköllunar á næstu dögum.

TIL BAKA