Fara yfir á efnisvæði

Innköllun á 578 Hyundai Santa Fe CM

18.09.2020

Lógó Hyundai

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL Hyundai á Íslandi um að innkalla þurfi 578 Hyundai undirtegund Santa Fe CM bifreiðar af árgerð 2005 - 2009. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að skammhlaup getur myndast í skriðvarnarkerfi bifreiðarinnar.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA