Þróun höfuðstóls og greiðslubyrði
Með lögum um neytendalán nr. 33/2013 er Neytendastofu falið að birta almennar upplýsingar og dæmi fyrir neytendur um þróun höfuðstóls og greiðslubyrði lána. Neytendastofu er einnig falið að birta upplýsingar um þróun verðlags og ráðstöfunartekna síðustu 10 ár.
Á þessari síðu er að finna lýsingar á áhrifum verðbólgu, Vaxtabreytinga og gengisbreytinga á þróun höfuðstóls, greiðslur lána, afborgunum höfuðstóls og vaxtabyrði. Þessum upplýsingum er ætlað að hjálpa neytendum að vega og meta kosti og galla ólíkra lána til þess að neytendur geti tekið upplýsta ákvörðun um hvaða lánafyrirkomulag hentar þeim best.
Við lánveitingu sem fellur undir lög um neytendalán nr. 33/2013 og er hærri en 2.000.000 kr. fyrir einstakling eða 4.000.000 kr. fyrir hjón/sambúðafólk ber lánveitendum að veita neytendum þessar upplýsingar frá Neytendastofu, eftir því sem við á. Lánveitanda ber alltaf að veita þessar upplýsingar þegar veitt er lán sem er tengt eða bundið erlendum gjaldmiðlum.
Hér er að finna upplýsingar um þróun höfuðstóls og greiðslubyrði