Ársskýrsla markaðseftirlits raffanga fyrir árið 2005
18.04.2006
Neytendastofa annast opinbera markaðsgæslu raffanga. Hún fylgist með rafföngum á markaði, aflar á skipulegan hátt upplýsinga um þau. Auk þess að taka við ábendingum frá neytendum og öðrum aðilum.
Faggiltar skoðunarstofur annast í umboði Neytendastofu framkvæmd skoðana á markaði í samræmi við gildandi samning hverju sinni, verklagsreglur og skoðunarhandbók Neytendastofu. Frá árinu 2003 hefur Aðalskoðun hf annast þessar skoðanir fyrir hönd Neytendastofu. Á eftirfarandi hlekk má nálgast ársskýrslu hennar fyrir árið 2005.
Ársskýrsla Aðalskoðunar 2005.