Fara yfir á efnisvæði

Ástand verðmerkinga á Egilsstöðum

17.09.2008

Neytendastofa hefur gert könnun á ástandi verðmerkinga á Egilsstöðum. Skoðaðar voru matvöruverslanir, bakarí og sérvöruverslanir.

Farið var í tvær matvöruverslanir á svæðinu. Valdar voru 25 vörur af handahófi í hverri verslun, kannað hvort þær væru verðmerktar og hvort verðmerking á hillu væri í samræmi við verð í kassa. Alls voru skoðaðar 50 vörur og voru verðmerkingar af 20% þeirra í ólagi, sjá nánar hér.

Farið var í eitt bakarí, Fellabakarí, og voru ekki gerðar athugasemdir við verðmerkingar þar.

Verðmerkingar voru kannaðar í 19 sérvöruverslanir bæði inni í verslunum og í sýningargluggum þar sem það á við. Almennt var ástand verðmerkinga í sérvöruverslunum ábótarvant.

Aðilum sem Neytendastofa telur ástæðu til að gera athugasemdir við vegna ástand verðmerkinga verður sent bréf frá stofnuninni og gefinn kostur á að koma verðmerkingum í viðunandi horf. Könnuninni verður fylgt eftir og ef þurfa þykir teknar ákvarðanir um hugsanleg viðurlög vegna slæms ástands verðmerkinga.

Neytendastofa hyggst halda verðmerkingareftirliti sínu áfram og kanna verðmerkingar á öðrum svæðum á landinu.

Ábendingum vegna rangra eða ófullnægjandi verðmerkinga má koma til neytendastofu í gegnum rafræna Neytendastofu á vefslóðinni rafraen.neytendastofa.is.

 

TIL BAKA