Fara yfir á efnisvæði

Athugun verðmerkinga á Suðurlandi

28.09.2011

Dagana 9. – 23. ágúst gerði Neytendastofa könnun á verðmerkingum í verslunum og þjónustufyrirtækjum í Árborg og Hveragerði. Farið var í matvöruverslanir, sérvöruverslanir, hárgreiðslustofur, bílaverkstæði, bakarí, bensínstöðvar,  veitingastaði o.fl. Alls heimsótti Neytendastofa því 121 fyrirtæki í á Selfossi, Stokkseyri, Eyrarbakka, í Þorlákshöfn og Hveragerði. Af þessum fyrirtækjum reyndust verðmerkingar vera í ólagi hjá 43% fyrirtækja. Í kjölfar skoðunarinnar sendi Neytendastofa viðkomandi fyrirtækjum bréf og gaf þeim kost á að koma verðmerkingum í viðunandi horf.

Í byrjun þessa mánaðar heimsóttu fulltrúar Neytendastofu aftur fyrirtækin sem gerð var athugasemd hjá. Ljóst var að fyrri heimsókn Neytendastofu hafði tilætluð áhrif á fyrirtæki í Hveragerði og Stokkseyri þar sem þau höfðu öll komið verðmerkingum í lag. Enn voru þó níu fyrirtæki sem höfðu ekki bætt verðmerkingar sínar, sjö á Selfossi og eitt á Eyrarbakka og eitt í Þorlákshöfn. Voru þetta annars vegar veitingastaðirnir Menam og Kaffi Krús, Frumherji, Snyrtistofan Myrra, Bifreiðaverkstæðið Klettur, Bíltak og Karl R. Guðmundsson á Selfossi og hins vegar veitingastaðirnir Hafið bláa við Þorlákshöfn og Rauða húsið á Eyrarbakka.

Neytendastofa hefur sent síðastgreindum aðilum bréf vegna þessa og ef þurfa þykir verða teknar ákvarðanir um viðurlög vegna slæms ástands verðmerkinga.

TIL BAKA