Hekla innkallar Volkswagen
04.12.2013
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf um innköllun á fimm
Amarok 2,0 L TDI bifreiðum árgerð 2011-2013. Ástæða innköllunar er mögulegur leki á eldsneytisleiðslum í vélarrúmi, sem
getur valdið dísel leka og í versta falli getur eldur orðið laus í bílnum. Um
er að ræða fimm bíla á Íslandi. Eigendur viðkomandi bíla hafa fengið sent bréf
vegna þessarar innköllunar.