Innköllun á FOX göfflum/dempurum
25.02.2014
Neytendastofu hefur borist tilkynningar frá versluninni Hjólasprettur um innköllun á Fox dempurum af gerðinni 32 og 34 Evolution Series, framleiddir milli 1. mars 2012 og 30. nóvember 2012. Ástæða innköllunarinnar er sú að gaffal dempara strokkur / stimpil samsetning getur losnað undir ákveðnum kringumstæðum með þeim afleiðingum að framhjól getur hugsanlega losnað frá reiðhjóli á meðan það er í notkun og orsakað hættu á falli og slys á hjólreiðarmanni.
Viðkomandi reiðhjólaeigendur hafa verið upplýstir um ofangreinda hættu.