Fara yfir á efnisvæði

Icelandic Water Holdings hf fær vottun til e-merkingar

13.03.2014

Fréttamynd

Neytendastofa veitti fyrirtækinu Icelandic Water Holding hf nú í lok febrúar vottun til e-merkingar. Vottunin gildir fyrir framleiðslulínu fyrirtækisins á íslensktu vatni sem það selur víða um heim undir heitinu Ícelandic Glacial. Merkið e á vöru staðfestir að kerfið sem notað er til pökkunar hennar er það nákvæmt að kaupandi vörunar geti treyst því að um rétt magn er að ræða. Staðsetning e-merkisins er við hliðina á þyngdar- eða rúmmálsmerkingu vörunar t.d. 0,5 kg e eða 500 ml e

Vaxandi fjöldi fyrirtækja í Evrópu setur e-merkingu sem skilyrði til að taka forpakkaðar vörur í sölu og hefur Neytendastofa sett á heimasíðu sína leiðbeiningar fyrir þá aðila sem óska að fá vottað ferli til e-merkinga. Ekki er leyfilegt að nota e-merkið án vottunar.
Neytendastofa óska Icelandic Water Holdings hf til hamingju með vottunina og óskar fyrirtækinu velfarnaðar.

Á myndinni má sjá Tryggvi Axelsson forstjóri Neytendastofu afhendir fulltrúa Icelandic Water Holdings hf, Unu Björk Jóhannsdóttir gæðastjóra og forstöðumanns rannsóknarstofu vottorð til e-merkinga.

TIL BAKA