Medela innkallar sótthreinsitæki (e. electric steriliser)
24.06.2014
Medela innkallar sótthreinsitæki (e. electric steriliser) með tegundarnúmerunum (e. model/type number) 200.3377 og 200.3378 og greinarnúmerunum (e. article numbers) 008.0100 til 008.0104, 008.0121 og 008.0287. Ástæða innköllunarinnar er vegna hættu á rafstraum.
Aðeins eitt eintak hefur verið selt af vörunni hér á landi og er vitað um kaupanda hennar. Neytendastofa vill hins vegar vekja athygli á þessari innköllun þar sem að varan kann að hafa borist til landsins með öðrum leiðum.
Neytendastofa hvetur þá neytendur sem eiga þessa vöru að hætta notkun hennar nú þegar.