Fara yfir á efnisvæði

Smábatterí getur valdið mikilli hættu.

21.07.2014

Neytendastofa hvetur fólk til að ganga úr skugga um að hlutir með litlum batteríum séu á öruggum stöðum. Smábatterí eru lítil batterí sem svipa til einnar krónu myntar. Þó svo að ekki fari mikið fyrir smábatteríum getur hættan af þeim verið mikil. Ef að barn gleypir slíkt batterí getur það valdið alvarlegum bruna á innan við tveimur klukkustundum. 

Flest heimili eiga raftæki sem inniheldur smábatterí. Rafhlöður sem þessar er m.a. finna í mörgum leikföngum sem gefa frá sér hljóð, hljóðbókum fyrir börn, lyklakippum, heyrnatækjum, úrum, fjarstýringum fyrir bæði sjónvörp, DVD tæki og hljómflutningsgræjum, eldhús- og baðvogum, kertum sem ekki eru með lifandi ljósi, auk annarra lítilla raftækja.

Þessi raftæki eiga það sameiginlegt að tiltölulega auðvelt er að opna lokið þar sem að þau eru fest. Ganga þarf úr skugga um að rafhlöðuhólfið sé öruggt og tryggja að börn hafi ekki aðgang að þeim ef að hólfið þar sem að rafhlaðan er geymd er ekki örugg. Þá þarf að gæta þess að auka rafhlöður séu geymdar þar sem börn ná ekki til og að notuðum rafhlöðum sé fargað tafarlaust.

Ef að barn gleypir smábatterí, eða ef þig grunar að það hafi gert slíkt, þarf að leita til læknis tafarlaust.

Á myndinni má sjá smábatterí eftir aðeins tvær klukkustundir.

 

TIL BAKA