Fara yfir á efnisvæði

Cintamani innkallar barnaföt

22.07.2014

Neytendastofa vekur athygli á innköllun á barnafatnaði frá Cintamani. Ástæða innköllunarinnar er sú að böndBarnaföt innkölluð og reimar í fjórum barnaflíkum frá Cintamani samræmast ekki lög nr. 134/1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu og staðalinn ÍST EN 14682:2007 um öryggi barnafatnaðar.

Bönd í hálsmáli barna yngri en 7 ára eru ekki leyfileg. Þá eru bönd í hálsmáli barna sjö til fjórtán ára leyfð innan ákveðinna marka. Auk þessa eru bönd í mitti leyfð innan ákveðinna marka en ekki er leyfilegt að hafa hangandi bönd/reimar neðan úr faldi á barnaflíkum sem ná niður fyrir klof.
Cintamani býður öllum viðskiptavinum sínum sem keypt hafa umræddar flíkur að snúa sér til Cintamani og fá aðstoð starfsfólks við að fjarlægja böndin úr fatnaðinum þeim að kostnaðarlausu.

Neytendastofa hvetur þá sem keypt hafa umræddan barnafatnað að snúa sér til verslana Cinamani svo að hægt sé að gera viðeigandi lagfæringar.

TIL BAKA