Sameiginleg aðgerð vegna „in-app“ kaupa
Neytendastofa tekur virkan þátt í nefnd innan Evrópska efnahagssvæðisins um neytendavernd. Eitt af viðfangsefnum nefndarinn voru svokölluð „in-app“ kaup en með þeim er átt við rafræn kaup innan tölvuforrits og þá helst tölvuleikja. Margir slíkir leikir eru auglýstir með orðunum „frítt“ eða „ókeypis“ en þegar komið er á visst stig leikjanna þarf að greiða fyrir vissa hluti, næsta borð, áframhaldandi notkun o.s.frv.
Mikill fjöldi kvartana hafa borist frá ýmsum löndun Evrópu vegna „in-app“ kaupa á beintengdum leikjum, þá sérstaklega vegna gálausra kaupa barna, sameinuðu innlend yfirvöld krafta sína með framkvæmdastjórn Evrópusambandsins til þess að finna lausnir á vandamálunum. Hin samhæfða aðgerð innan Evrópusambandsins hefur borið verulegan árangur. Fyrirtæki í greininni hafa tekið á sig fjölda skuldbindinga til að efla vernd neytenda. Aðgerðin mun auka tiltrú neytenda á hinum ört vaxandi „app“ geira.
Sameiginleg afstaða eftirlitsaðila um neytendavernd var send til Apple, Google og evrópskra samtaka framleiðanda gagnvirks hugbúnaðar (Interactive Software Federation of Europe). Kom þar m.a. fram að:
- Leikir sem auglýstir væru sem „ókeypis“ ættu ekki að vera misvísandi um raunverulegan kostnað sem innifalinn væri;
- Leikir ættu ekki að innihalda beinar hvatningar til barna um að kaupa hluti innan leiks eða hvatningar til fullorðinna um að kaupa hluti fyrir börn;
- Neytendur ættu að vera nægjanlega upplýstir um tilhögun greiðslna vegna kaupa og ekki ætti að skuldfæra þá með sjálfvöldum stillingum án skýrs samþykkis neytenda;
- Þjónustuveitendur ættu að gefa up netfang til þess að neytendur gætu haft samband við þá vegna fyrirspurna eða kvartana
Google hefur ákveðið að framkvæma þónokkrar breytingar. Innleiðing er þegar hafin og ætti að ljúka fyrir lok september. Meðal annars verður ekki notast við orðið „free“ þegar leikir innihalda möguleika á „in-app“ kaupum. Þá verða gefnar út hnitmiðaðar leiðbeiningar fyrir app-framleiðendur. Sjálfvöldum stillingum notenda hefur einnig verið breytt þannig að skýrs samþykkis er leitað vegna sérhverrar greiðslu nema að neytandi kjósi sjálfviljugur að breyta þessum stillingum.
Apple hefur því miður ekki gert neinar breytingar enn sem komið er en fyrirtækið hefur lofað að athuga vandamál ítarlega, sérstaklega hvað varðar samþykki vegna greiðslna. Tímamörk hafa hins vegar ekki verið sett fram og mun nefnd um neytendavernd halda samskiptum við Apple áfram til þess að tryggja að Apple breyti atriðum sem nefndin leggur til.
Aðildaríki EES mun halda áfram að fylgjast með viðfangsefninu og þá sérstaklega að hvaða leyti skuldbindingar aðila hafa tekið á atriðunum sem koma fram í sameiginlegri afstöðu nefndarinnar um neytendavernd.