Fara yfir á efnisvæði

Sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu

10.10.2014

Neytendastofa fór í sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu núna í september sl.til að kanna hvort verðmerkingar væru í samræmi við lög og reglur. Því var svo fylgt eftir með seinni heimsókn í þær fimm sundlaugar sem stofnunin hafði áminnt eftir fyrri könnun. Farið var í Árbæjarlaug, Grafarvogslaug, Lágafellslaug, Vesturbæjarlaug og Laugardalslaug. Þrjár höfðu komið verðmerkingum sínum í lag en hjá Árbæjalaug og Vesturbæjarlaug var verðmerkingum enn ábótavant.

Tekin verður ákvörðun í framhaldinu hvort beita skuli þessar tvær sundlaugar sektum fyrir að virða að vettugi fyrirmæli og ábendingar Neytendastofu um úrbætur á ástandi verðmerkinga.

Við hvetjum neytendur til að vera ávallt vel á verði og koma ábendingum á framfæri á heimasíðu Neytendastofu.

TIL BAKA