Fara yfir á efnisvæði

A4 sektað vegna rangra fullyrðingar

22.10.2014

Neytendastofu barst kvörtun frá Pennanum vegna auglýsinga A4 um „stærsta skiptibókamarkaðinn“ sem birtist í fjölmiðlum í lok sumars 2014. Taldi Penninn A4 ekki geta sannað fullyrðinguna auk þess sem enginn fyrirvari eða útskýringar fylgdu henni. Vísaði Penninn til þess að félaginu hafi verið bönnuð notkun fullyrðingarinnar „stærsti skiptibókamarkaður á landsinu“ en þar hafi A4 verið kvartandi.

Neytendastofa taldi fullyrðinguna brjóta gegn ákvæðum laga þar sem hún væri mjög afdráttarlaus og ekki vísað til þess hvaða stærðarviðmið átt væri við. A4 lagði ekki fram nein gögn til stuðnings fullyrðingu sinni og af þeim sökum var A4 bönnuð notkun fullyrðingarinnar.

Neytendastofa sektaði jafnframt A4 um 200.000 kr. þar sem félaginu átti að vera ljóst að skylt væri að færa sönnur á fullyrðinguna sérstaklega þar sem A4 hafi verið kvartandi í eldra máli þegar Pennanum hafi verið bönnuð notkun sambærilegrar fullyrðingar.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA